Lionsklúbbur Ísafjarðar gefur eina milljón til kaupa á nýju sneiðmyndatæki
Árið 2005 fór af stað söfnun til kaupa á sneiðmyndatæki til Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða á Ísafirði. Keypt var notað tæki fyrir hluta söfnunarfjárins, sem því miður bilaði á síðastliðnu ári. Liðlega 1.300 einstaklingar höfðu verið rannsakaðir í tækinu á rekstrartíma þess. Mikilvægi þess að hafa slíkt tæki til staðar á stofnuninni, er því óumdeilanlegt með tilliti til styttri rannsóknartíma, markvissari árangurs í sjúkdómsgreiningum, minni kostnaðar þeirra sem notið geta slíkar rannsóknar á heimaslóðum ekki síður en þess þjóðhagslega sparnaðar sem tilvist tækisins leiðir af sér.
Söfnunin 2005 gekk svo vel að hún skilaði nálega tvöföldu kaupverði tækisins. Þrátt fyrir mikla veikingu íslensku krónunnar, hafa ný tæki lækkað verulega á markaðnum og þar sem talið var að rekstraröryggi viðgerðs tækis yrði óásættanlegt, var ákveðið á síðastliðnu hausti að kanna möguleika á kaupum nýs tækis. Tilboð barst um nýtt 16 sneiða tæki sömu tegundar og hið gamla 4 sneiða, fyrir liðlega 40 milljónir króna að því tilskyldu að seljandi fengi hið gamla afhent uppí kaupverðið. Stjórn Úlfssjóðs ákvað því að leggjast á árarnar og hafa nú safnast hátt í 40 milljónir króna til kaupa á nýju sneiðmyndatæki og munar þar mestu um myndarlegt framlag Klofnings ehf. kr. 5 milljónir. Enn vantar þó örfáar milljónir til að endar nái saman og því hefur verið ákveðið að leita til fyrirtækja og almennings um frjáls framlög til söfnunarinnar. Söfnunarreikningur sjóðsins er í Sparisjóðnum á Ísafirði og er númer hans 1128-05-2051 kt. 430210-0170.
Stjórn Úlfssjóðs væntir góðra undirtekta við þessu ákalli og stefnir á að nýtt tæki verði komið í notkun eigi síðar en í maí á þessu ári. Í stjórn Úlfssjóðs eru Þorsteinn Jóhannesson formaður, Eiríkur Finnur Greipsson, Gísli Jón Hjaltason og Hörður Högnason.
Deila á Facebook
Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er 38.107.179.208 og er skráð með athugasemdinni.
















- - - Ríkið á að kaupa þessi tæki, eins og það gerir á spítölunum fyrir sunnan. Þeir sem hafa þörf fyrir að gefa til velferðarmála eiga að finna sér annan vettvang, láta ríkið borga það sem ríkisins er.