Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
09.09.2010 - 11:56

Leiklistarskóli Kómedíuleikhússins: Fjöldi námskeiđa fyrir börn og fullorđna

Ársćll Níelsson ásamt Elfari Loga munu kenna viđ Leiklistarskólann
Ársćll Níelsson ásamt Elfari Loga munu kenna viđ Leiklistarskólann

Nýjum skóla er nú verið að hleypa af stokkunum í Ísafjarðarbæ.  Það er Leiklistarskóli Kómedíuleikhússins sem er að hefja sína fyrstu önn nú í september.  Á vegum skólans verða haldin leiklistarnámskeið fyrir börn, unglinga og fullorðna.  Námskeiðin standa í tíu vikur og lýkur með nemendasýningu.  Skólinn er til húsa í Listakaupstað á horni Fjarðarstrætis og Tangagötu á Ísafirði (áður húsnæði Norðurtangans), þar sem listamenn hafa hreiðrað um sig á efstu hæð.  Opið hús verður á vegum leiklistarskólans laugardaginn 11. september á milli klukkan 14 og 16 í húsnæði skólans.  Þar er tækifæri til að kynna sér námskeið og húsnæði skólans. Leiklistarskóli Kómedíuleikhússins verður settur í fyrsta sinn sunnudaginn 19. september kl. 14.00 og námskeiðin hefjast mánudaginn 20. september. Aðalkennarar við Kómedíuskólann eru þeir Elfar Logi Hannesson og Ársæll Níelsson sem báðir eru menntaðir í Kómedíuskólanum í Kaupmannahöfn. Frekari upplýsingar gefur Elfar Logi í síma 891-7025.


Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.206 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón