Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
22.02.2012 - 11:43

Landsbankinn heldur fund á Ísafirđi um fjárfestingar, nýsköpun og uppbyggingu

Landsbankinn hefur starfađ á Ísafirđi frá árinu 1904. Mynd Kári Ţór
Landsbankinn hefur starfađ á Ísafirđi frá árinu 1904. Mynd Kári Ţór
Landsbankinn heldur opinn fund á Ísafirði í kvöld um fjárfestingar, nýsköpun og uppbyggingu atvinnulífs. Fundurinn fer fram í Edinborgarhúsinu og hefst klukkan 20.00.  Á fundinum kynnir Steinþór Pálsson bankastjóri stefnu og áherslur Landsbankans og Svana Gunnarsdóttir hjá Frumtaki flytur erindi um nýsköpun á Íslandi. Forsvarsmenn tveggja fyrirtækja kynna árangursrík verkefni auk þess sem þjónusta Landsbankans við nýsköpun og sprotafyrirtæki er kynnt. Að loknum fundi verður boðið upp á kaffiveitingar.

 

Dagskrá fundarins er þessi:

19:30 Húsið opnar
20:00 Steinþór Pálsson - "Landsbankinn heldur áfram"
20:15 Svana Gunnarsdóttir, Frumtaki - "Nýsköpun á Íslandi"
20:45 Margrét O. Ásgeirsdóttir - "Nýsköpunarþjónusta Landsbankans"
21:00 Andrea Maack og Gísli Þór Sverrisson - Andrea Maack Parfums
21:10 Þorsteinn Jóhannesson - Norðursigling
21:20 Pallborðsumræður með fyrirlesurum og stjórnendum bankans.


Deila á Facebook
#1
22.02.2012 kl: 14:00
Jón skrifar:

"Landsbankinn hefur starfađ á Ísafirđi frá árinu 1904."

Núverandi Landsbanki ađeins í ţrjú ár, rétt skal vera rétt!

#2
22.02.2012 kl: 15:30
Önfirđingur skrifar:

banki undir nafninu Landsbankinn hefur verđ starfrćktur á Ísafirđi frá 1904....

#3
22.02.2012 kl: 15:38
Jón skrifar:

"banki undir nafninu Landsbankinn hefur verđ starfrćktur á Ísafirđi frá 1904...."

Önni, ţađ er rétt; en núverandi Landsbanki er ekki gamalgróin stofnun, eins og gefiđ er til kynna undir myndinni.

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.209 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón