Landsmálavefur á Vestfjörðum | skutull@skutull.is
07.04.2010 - 09:35

Kvótafyrirtækin áttu meira en helming allra framlaga til Sjálfstæðisflokksins árið 2008

Útgerðarmenn eru öflugustu bakhjarlar Sjálfstæðisflokksins
Útgerðarmenn eru öflugustu bakhjarlar Sjálfstæðisflokksins
Meirihluti framlaga frá fyrirtækjum sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk árið 2008, komu frá fyrirtækjum í sjávarútvegi.  Þetta kemur fram í þeim upplýsingum sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur gefið um styrktraraðila sína árið 2008.  Samkvæmt ársreikningi flokksins fékk fékk hann árið 2008 alls 8,6 milljónir króna frá 39 fyrirtækjum.  Af þeirri upphæð eru 4,6 milljóinir króna frá sautján útgerðarfyrirtækjum, eða 53 prósent. Minnst fimmtán fyrirtækjanna hafa yfir að ráð aflaheimildum í kvótakerfinu.  Hér eru einungis talin framlög útgerðarfyrirtækja, en ekki annarra sjávarútvegsfyrirtækja, til að mynda fullvinnslu- og sölufyrirtæki, eins og Icelandic Group (sem að stærstum hluta er í eigu Hraðfrystihússins Gunnvarar hf. og Brims hf.). 

Átta af tíu helstu handhöfum aflaheimilda á landinu árið 2009, samkvæmt lista Fiskistofu, styrktu Sjálfstæðisflokkinn.  Þess má geta að fyrrgreind sautján sjávarútvegsfyrirtæki eru áhrifamikil innan LÍÚ, Landssambands íslenskra útvegsmanna. Tíu fyrirtækjanna eiga fulltrúa í fimmtán manna stjórn Landssambandsins.

Þessar upplýsingar komu fram í frétt á Vísi.is fyrir skömmu.  Þar segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, þennan stuðning sjávarútvegsfyrirtækja endurspegla samhljóm milli stefnu flokksins og atvinnurekenda. „Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð átt mikla samleið með atvinnurekendum í þessu landi. Það kemur mér því ekki á óvart að undirstöðuatvinnugreinin styðji við flokkinn," segir hann.  Spurður hvort svo afgerandi stuðningur frá einni atvinnugrein geti hugsanlega haft áhrif á stefnumál flokksins, minnir Bjarni á lög um fjármál stjórnmálasamtaka frá 2007:  „Þegar horft er til þess hve mikið framlögin voru þá takmörkuð [hámark 300.000 króna framlag frá hverju fyrirtæki] finnst mér ekki minnsta ástæða til að ætla að það sé einhver slík tenging til staðar."  Bjarni segist aðspurður ekki þekkja hvert hlutfall framlaga frá sjávarútvegsfyrirtækjum af heildarframlögum til flokksins var áður en lögin voru sett. 

Árin fyrir 2006 fékk skrifstofa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 330 milljónir króna frá fyrirtækjum, samkvæmt upplýsingum úr Valhöll. Stór hluti þeirra framlaga er ónafngreindur og spurning hvort félagar í LÍÚ eigi stóran þátt í þeim, auk þess sem algerlega vantar upplýsingar um framlög fyrirtækja til aðildarfélaga flokksins um allt land, sem gætu numið annarri eins upphæð.  Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki gefið upplýsingar um framlög fyrirtækja til einstakra flokksfélaga eða kjördæmisráða, heldur aðeins til landsflokksins. Það er verðugt rannsóknarefni hve mikið sjávarútvegsfyrirtæki hafi styrkt flokkinn út um allt land.  Það kom til dæmis í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn í Ísafjarðarbæ fékk helminginn af sínum stuðningi frá fyrirtækjum árið 2006, frá helstu útgerðarfyrirtækjum í sveitarfélaginu, sem þá störfuðu: HG hf., Íslandssögu hf. og Kambi hf. á Flateyri. Sjá frétt á  skutli.is.

Deila á Facebook

Skrifaðu athugasemd:

ATH. IP talan þín er 38.107.179.206 og er skráð með athugasemdinni.


Vefumsjón