Íslenskir fiskimenn á fundi međ mannréttindafulltrúa Evrópuráđsins til ađ rćđa kvótakerfiđ
Fulltrúar frá Samtökum íslenskra fiskimanna (SÍF) gengu á fund mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins Thomas Hammarberg fyrir stuttu síðan. Á fundinum gerðu fulltrúar íslenskrar sjómannastéttar Thomas Hammerberg grein fyrir því að enn væru íslensk stjórnvöld ekki búin að bregðast við áliti Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá 12. desember 2007 og gert breytingar á núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi í samræmi við kröfur Mannréttindanefndarinnar. Stór hluti fundarins snerist um íslenska fiskveiðistjórnkerfið og stöðu þess gagnvart alþjóðlegum mannréttindasáttmálum sem Ísland hefur undirgengist, þar á meðal gagnvart Mannréttindasáttmála Evrópu. Thomas Hammerberg var vægt til orða tekið áhugasamur um allt sem við kemur málinu og óskaði sérstaklega eftir að fá skýrslu um það, sem mun verða send honum á næstunni.
Fulltrúar SÍF sem fóru á fund Mannréttindanefndarinnar voru Birgir Haukdal Rúnarsson, Baldur Þórir Gíslason, Þórður Már Jónsson, Lúðvík Emil Kaaber og Grétar Mar Jónsson. Fram kemur í tilkynningu frá stjórn Sambands íslenskra fiskimanna að jafnvel þó að enginn fulltrúi frá íslenskum fjölmiðlum hafi verið á fundinum, hafi þeim engu að síður tekist að senda frá sér afar villandi fréttir um efni fundarins.
Deila á Facebook
Setning Kvótakerfisins í upphafi var brot á mannréttindum og hafa ţau aukist ár frá ári síđan. Ađ ríkisstjórnir skuli koma og fara og ţetta órétti halda áfram er ljótur blettur á Lýđveldinu og til háborinnar skammar Alţingis. Mogga hirđin situr og heldur um stjórntaumanna og valtar yfir einstaklinga og lýđrćđiđ og ćtlar ađ stjórna öllu í sjávarútvegi međa ţáu tóra og helst lengur. Svona fer grćđgin međ fólk
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.179.208 og er skráđ međ athugasemdinni.
















Ţetta er allveg magnađ ađ viđ Íslendingar ţurfum orđiđ ađ leita til mannréttindarfulltrúa og nefnda til ađ freista ţess ađ hćgt sé ađ fá Íslenska ráđamenn til ađ fara ađ mannréttindum og stjórnaskrá eigin ţjóđar hvađ er ađ?