01.09.2010 - 11:33
Innritun í tónlistarnám og dans í fullum gangi hjá Listaskóla Rögnvaldar
Innritun í tónlistarnám og dans er enn í gangi hjá Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar í Edinborgarhúsinu. Auk tónlistarkennslunnar og dansins, verða ýmis námskeið í boði í vetur. Þar má nefna námskeið með Huldu Leifsdóttur í flókagerð (hattar, treflar, pottaleppar og fleira), grunnkennslu í sápugerð þar sem eingöngu verða notuð náttúruefni og japanskt bókband, þar sem búnar eru til bækur úr pappír og bundnar með bandi eða garni. Þá ætlar Henna-Riikka Nurmi danskennari við Listaskólann að vera með námskeið fyrir foreldra og börn undir þriggja ára aldri. Einnig verða námskeið í dansi þar sem 20 ára og eldri geta komið og prófað að dansa ballett, jassdans eða nútímadans.
Deila á Facebook
Loks má nefna að í undirbúningi er stofnun vatnslitasamtaka Listaskólans og eru áhugasamir beðnir um að skrá sig á vefnum eða hringja í síma 456-5444 eða 864-2998.
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.179.207 og er skráđ međ athugasemdinni.















