10.02.2012 - 11:02
Húslestur á Gamla sjúkrahúsinu: Lesiđ úr verkum Fríđu Á. Sigurđardóttur
Húslestur verður á Gamla sjúkrahúsinu á Ísafirði á laugardag, 11. febrúar. Þá munu Elfar Logi Hannesson leikari og Jóna Símonía Bjarnadóttir safnfræðingur kynna og lesa úr verkum Fríðu Á. Sigurðardóttur rithöfundar. Fríða var Vestfirðingur að ætt og uppruna, úr Sléttuhreppi í Norður-Ísafjarðarsýslu. Eftir hana liggur fjöldi skáldverka. Húslesturinn hefst kl. 14 og eru allir velkomnir.
Fríða Áslaug Sigurðardóttir fæddist á Hesteyri í Sléttuhreppi 11. desember 1940. Fyrsta bók Fríðu var smásagnasafnið Þetta er ekkert alvarlegt sem kom út árið 1980. Síðan sendi hún frá sér skáldsögur og fjölda smásagna auk þess sem hún þýddi verk erlendra höfunda. Bók hennar, Meðan nóttin líður, sem út kom árið 1990, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 1991 og Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1992. Síðasta verk verk Fríðu var skáldsagan Í húsi Júlíu sem kom út árið 2006. Fríða var heiðursfélagi í Rithöfundasambandi Íslands. Fríða Á. Sigurðardóttir rithöfundur lést í Reykjavík 7. maí 2010.
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.179.206 og er skráđ međ athugasemdinni.