02.09.2010 - 10:45
Guðbjartur Hannesson verður ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur
Samkvæmt nýjustu fréttum verður Guðbjartur Hannesson þingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi skipaður ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, eftir breytingar sem gerðar verða á ráðherraskipan síðar í dag. Nú stendur yfir flokksstjórnarfundur hjá Samfylkingunni, þar sem breytingar á ráðherraskipan verður rædd og borin upp. Fregnir herma að Guðbjartur taki við embætti félags- og tryggingaráðherra og taki jafnvel einnig yfir heilbrigðisráðuneytið að auki. Niðurstaðan verður ljós þegar ríkisráðsfundur verðu haldinn á Bessastöðum í hádeginu í dag.
Deila á Facebook
Deila á Facebook
Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er 38.107.179.209 og er skráð með athugasemdinni.















