Vitastígur 1 í Bolungarvík, ţar sem Grćnlandssetur var kynnt 21. júní 2010 á ţjóđhátíđardegi Grćnlendinga
Undirbúningsfélag fyrir Grænlandssetur hefur látið vinna tillögur með hugmynd að skipulagi sýningar og seturs í Bolungarvík. Það er Guðfinna Hreiðarsdóttir sagnfræðingur sem hefur unnið tillögu að Grænlandssetri í Bolungarvík. Í frétt frá undirbúningsfélaginu segir að hugmyndir Guðfinnu séu góður grunnur til að byggja frekari vinnu á. Gert er ráð fyrir að setrið verði til húsa á efri hæð Vitastígs 1 í Bolungarvík, þar sem undirbúningsfélagið hefur þegar fengið afnot af einu herbergi. Nýlega fékk félagið nokkra sýningargripi ættaða frá Grænlandi, þjóðlegan fatnað úr selskinni og fleiri muni, sem áður voru til sýnis í Selasetrinu á Hvammstanga. Þeir eru nú til sýnis í húsnæði setursins. Grænlandssetrið í Bolungarvík er komið með
feisbókarsíðu á netinu, þar sem áhugasamir geta fylgst með fréttum af undirbúningi málsins.
Í síðasta mánuði kom fyrsti Grænlendingurinn i heimsókn í húsnæði Grænlandsseturs í Bolungarvík. Það var leikkonan Makka Kleist frá Siimut leikhúsinu í Nuuk á Grænlandi, sem tók þátt í Act alone leiklistarhátíðinni á Ísafirði. Þar sýndi hún einleik sem byggði á fornum Inuitafrásögnum. Formaður undirbúningsfélagsins Jónas Guðmundsson sýslumaður í Bolungavík tók á móti Mökku Kleist og eiginmanni hennar og Elvari Loga Hannessyni leikara og leikhúsmanni á Ísafirði. Áttu þau góðar viðræður um möguleika á samskiptum Vestfirðinga og Grænlendinga á menningarsviðinu.
Deila á Facebook