Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
02.09.2010 - 09:38

Gott fordćmi: Góđ afkoma Sparisjóđs Suđur-Ţingeyinga

Góðar fréttir af sparisjóðum landsmanna eru ekki margar þessa dagana.  Þess vegna þykir skutli.is rétt að birta frétt frá Sparisjóði Suður-Þingeyinga og beygja þar með reglu okkar um að birta einungis fréttir sem snerta Vestfirði eða Vestfirðinga. Í tilkyningu segir að hagnaður af rekstri Sparisjóðs Suður-Þingeyinga á fyrri hluta ársins nemi 40 milljónum króna, sem gerir rúmlega 31 milljón króna afgang eftir skatta.  Þegar Sparisjóður Vestfirðinga er nú horfinn inn í Sparisjóðinn í Keflavík og kominn í þrot, Sparisjóður Bolungarvíkur afskrifar yfir 90% af stofnfé sínu, er gott að vita af sparisjóði sem stendur sterkt í sínu héraði.  Þess má geta að Sparisjóður Strandamanna á Hólmavík stendur einnig sterkt og hefur ekki þurft á neinum björgunaraðgerðum að halda.

Sparisjóður Suður-Þingeyinga er gott dæmi um smáa fjármálastofnun sem starfar af myndugleik og stendur þétt við bakið á viðskiptavinum sínum á ákveðnu markaðssvæði, en viðskiptavinum víðsvegar af landinu hefur fjölgað mjög að undanförnu. Sparisjóður Suður-Þingeyinga hefur aðalstöðvar á Laugum í Reykjadal en útibú í Reykjahlíð og á Húsavík. Hjá sparisjóðnum starfa 13 starfsmenn. Sparisjóðsstjóri er Guðmundur E. Lárusson.


Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.210 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón