09.09.2010 - 09:34
Fyrrverandi skólastjóri á Tálknafirđi ákćrđur fyrir fjárdrátt
Fyrrverandi skólastjóri Grunnskólans á Tálknafirði hefur verið ákærður fyrir fjárdrátt og brot í starfi. Ríkissaksóknari sækir málið fyrir Héraðsdómi Vestfjarða. Skólastjóranum fyrrverandi, sem er á fimmtugsaldri, er gefið að sök að hafa dregið sér rúmlega eina og hálfa milljón króna af fjármunum skólans. Tálknafjarðarhreppur gerir skaðabótakröfu á hendur manninum upp á tæpar tvær milljónir króna með vöxtum. Frá þessu segir í Fréttablaðinu í dag.
Deila á Facebook
Í ákæru segir að maðurinn hafi á tímabili frá 5. nóvember 2008 til 30. júlí 2009 misnotað aðstöðu sína sem skólastjóri, bæði á þáverandi heimili sínu að Innstu-Tungu í Tálknafirði, og í húsnæði Grunnskólans á Tálknafirði, að Sveinseyri. Hann hafi dregið sér samtals rúmlega eina og hálfa milljón með óheimilum millifærslum af bankareikningi skólans hjá Sparisjóði Vestfirðinga, sem skólastjórinn fór með vörslu á og hafði aðgang að með heimabanka. Af heildarupphæðinni færði maðurinn inn á eigin bankareikning tæpar 1,3 milljónir í nítján færslum. Samtals 230 þúsund færði hann svo í sex færslum inn á bankareikning eiginkonu sinnar.
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.179.210 og er skráđ međ athugasemdinni.















