Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
26.02.2010 - 13:20

Fundur og frćđsla um netöryggi og nýsköpun á Ísafirđi í dag

Halldór Jörgensson.  Mynd vb.is/BIG
Halldór Jörgensson. Mynd vb.is/BIG
Fundur um netöryggi og unglinga verður haldinn í dag í félagsmiðstöðinni á Ísafirði kl. 17.00 til kl. 18.00.  Þar mun Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi, spjalla við unglinga um örugga netnotkun.  Halldór er á hringferð um landið og æltaði að vera á Hólmavík í morgun og voandi að hann nái alla leið í dag.  Halldór heldur jafnframt fundi um nýsköpun í atvinnumálum á sviði gagnavinnslu.  Fundaferðin er farin í samvinnu við SAFT.  Tlgangurinn er að hvetja til ábyrgrar hegðunar í rafrænum samskiptum og vekja fólk til umhugsunar um hvernig börn og fullorðnir geti varast ýmsar þær hættur sem fylgt geta netnotkun. Nýsköpunarfundurinn á Ísafirði verður haldinn strax á eftir netöryggisfundinum og hefst kl. 18:10 í Háskólasetri Vestfjarða.
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.206 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón