Fjórđungssamband Vestfirđinga: Orđum fylgi efndir í samgönguáćtlun
Af þessari ástæðu hvetur Fjórðungssamband Vestfirðinga þingmenn til að, annarsvegar að standa fast að áætlunum um að klára vegagerð um Austur-Barðastrandarsýslu, og hinsvegar að flýta mikilvægum framkvæmdum í samgöngumálum Vestfjarða, til að tengja saman þéttbýlisstaði og byggðir. Þar er mikilvægast að tengja Ísafjarðarsýslu og Barðastrandarsýslu og að tengja Árneshrepp við þjóðvegakerfi Strandasýslu. Dýrafjarðargöng og vegur um Dynjandisheiði hafa verið færð aftast í samgönguáætlun til áranna 2019-2022. Hið sama gildir um nýframkvæmdir á Veiðileysuhálsi sem áætlaðar eru á árabilinu 2019-2022 og Bjarnafjarðarhálsi á árabilinu 2015-2018, á leiðinni frá Steingrímsfirði og norður í Árneshrepp. Þessar framkvæmdir verða að færast framar í röðinni, til að hægt sé að spyrna við fótum gegn óhagstæðri byggðaþróun eða jafnvel falli byggða á svæðinu. Tvöfalda þarf framlög til vegamála á Vestfjörðum á tímabilinu 2013-2018, til að það verði að veruleika. Þá fyrst verður hægt að tala um að Vestfirðir njóti einhverskonar forgangs á næstu árum.
Fjórðungssamband Vestfirðinga hvetur Alþingi Íslendinga til að taka samgönguáætlun til gagngerrar skoðunar og færa fram þær mikilvægu úrbætur sem Vestfirðingar hafa beðið eftir um langt árabil. Þetta þarf að fjármagna á næstu 5-7 árum til að uppfylla markmið um jafnræði allra þegna landsins. Vestfirðingar horfa til samgönguyfirvalda og Alþingis um liðsinni í þessu mikilsverða máli fyrir framtíð byggðar á Vestfjörðum."
Ályktun stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga, varðandi þingsályktun um samgönguáætlun 2011-2022, var samþykkt á fundi stjórnar 20. febrúar 2012.
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.179.206 og er skráđ međ athugasemdinni.
















Ţetta er gott hjá stjórn Fjórđungssambandsins, ađ a.m.k. gera tilraun til ađ láta menn standa viđ orđ sín. Ţetta samgönguleysi innan ţessa landshluta stendur okkur fyrir ţrifum, ţurfum ađ láta heyra miklu meira í okkur, höfum veriđ alltof hógvćr.