Landsmálavefur á Vestfjörðum | skutull@skutull.is
10.09.2010 - 09:29

Fimm þúsund manns boðið á Þjóðfund til að undibúa stjórnarskrá

Völdin í hendur fólksins!  Mynd frá mótmælum á Ísafirði í janúar 2009, Ágúst Atlason
Völdin í hendur fólksins! Mynd frá mótmælum á Ísafirði í janúar 2009, Ágúst Atlason
Á næstu dögum fá fimm þúsund Íslendingar boðsbréf á Þjóðfund um stjórnarskrá Íslands.  Fundurinn verður haldinn laugardaginn 6. nóvember í Laugardalshöllinni í Reykjavík.  Íslendingarnir fimm þúsund voru valdir af handahófi úr þjóðskrá með slembiúrtaki einsog það er kallað.  Samkvæmt lögum sem samþykkt voru um stjórnlagaþing og nýja stjórnarskrá er gert ráð fyrir að eitt þúsund manns taki þátt í Þjóðfundi til að undirbúa hugmyndir fyrir nýja stjórnarskrá. Til að tryggja þátttöku á fundinum var ákveðið að boða fjögur þúsund manns til viðbótar sem varamenn.  Á Þjóðfundinum verður kallað eftir meginsjónarmiðum þátttakenda um stjórnskipan landsins, stjórnarskrá og endurskoðun á henni. Sérstök nefnd, stjórnlaganefnd, mun vinna úr upplýsingum sem safnast á Þjóðfundi 2010 og afhenda Stjórnlagaþingi er kemur saman í febrúar 2011.  Fulltrúar á stjórnlagaþing verða kosnir í almennum kosningum 27. nóvember.

 

Fulltrúar sem sækja þjóðfundinn 6. nóvember fá greidda þóknun, 17.500 krónur, fyrir að taka þátt í fundinum. Þá fá þátttakendur utan höfuðborgarsvæðis greiddan kostnað vegna ferða og fría hótelgistingu. Þetta er gert til að tryggja að sem flestir sjái sér fært að mæta. Með þjóðfundi og stjórnlagaþingi eru farnar nýjar leiðir að mótun stjórnarskrár Íslands og þjóðinni sjálfri boðið að leggja fram eigin hugmyndir strax í upphafi.


Deila á Facebook

Skrifaðu athugasemd:

ATH. IP talan þín er 38.107.179.207 og er skráð með athugasemdinni.


Vefumsjón