Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
20.01.2012 - 07:08

Eitt ár frá gjaldţroti Eyrarodda, fjögur og hálft ár frá ţví Kambur hćtti

Fulltrúar Frćđslumiđstöđvarinnar og Ísafjarđarbćjar ásamt heimamönnum á Flateyri. Mynd verkvest.is
Fulltrúar Frćđslumiđstöđvarinnar og Ísafjarđarbćjar ásamt heimamönnum á Flateyri. Mynd verkvest.is
Ár er nú liðið frá því fiskvinnslan og útgerðarfyrirtækið Eyraroddi á Flateyri varð gjaldþrota. Félagið var stofnað eftir að eigendur Kambs, sem starfað hafði í um áratug á Flateyri hætti starfsemi og seldi burtu allan kvóta fyrirtækisins, sem var um 90% af öllum kvóta byggðarlagsins.  Það  var vorið 2007, skömmu eftir alþingiskosningar.  Þá misstu yfir 120 manns atvinnuna. Eyraroddi starfaði í tæp þrjú ár, gerði út vélbátinn Stjána Ebba og veitti á milli 30 og 40 manns atvinnu.  Nú hafa tvö fyrirtæki hafið starfsemi á Flateyri í útgerð og fiskvinnslu, Lotna ehf. og Arctic Oddi ehf.  Hjá báðum fyrirtækjum starfa 7-8 manns.  Það hafa því orðið mikil umskipti í atvinnumálum Flateyrar síðustu ár.  Fulltrúar þeirra stofnana í Ísafjarðarbæ sem aðstoðað hafa atvinnuleitendur á Flateyri síðasta árið komu saman til fundar fyrr í mánuðinum.  Frá því segir á heimasíðu Verk Vest.

Á fundinum, sem haldinn var í Sólborg á Flateyri, var farið yfir þau verkefni sem komið var af stað og hvernig þau hafa nýst atvinnuleitendum og samfélaginu á Flateyri. Mikið hefur mætt á starfsfólki þessara stofnana en að öðrum ólöstuðum má segja að Fræðslumiðstöðin hafi staðið vaktina með miklum sóma. Fjölmörg námskeið hafa verið haldin, bæði starfstengd og til sjálfstyrkingar. Má þar nefna íslensku kennslu, tölvunám, bókhald, vélastjórnarnám ásamt fiskvinnslunámi svo nokkur séu nefnd.


Þessi námskeið hafa gefið atvinnuleitendum meiri og fjölbreyttari möguleika. Atvinnuleitendur hafa þó orðið varir við að þeir sem hafa íslenskukunnáttu ganga frekar fyrir í vinnu en þeir sem ekki tala íslensku. Með þessum námskeiðum telja heimamenn að markmið Fræðslumiðstöðvarinnar að styrkja samfélagið hafi tekist mjög vel. Þetta merkir fólk á að meiri tenging er orðin innan samfélagsins meðal Íslendinga og fólks af erlendu bergi. Vinnumarkaðsátak í umhverfismálum sem unnið var í samstafi Vinnumálastofnunar og Ísafjarðarbæjar hefur einnig skilað jákvæðum straumum inn í samfélagið á Flateyri. Fræðslumiðstöðin mun halda út starfsemi á Flateyri fram á vorið og vonandi lengur ef áhugi, vilji og fjármunir verða til staðar.


Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.206 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón