Dýralæknar óttast áhrif lagabreytingar
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir, er héraðsdýralæknir á Vestfjörðum telur að erfitt verði að fá fólk til starfa ef lögum verður breytt þannig að opinbert eftirlit dýralækna verði aðskilið frá þjónustu þeirra við dýraeigendur. Hún óttast að þetta geti orðið til þess að eigendur lógi dýrum í auknum mæli í stað þess að leita þeim lækninga.
Aðalfundur dýralæknafélags Íslands mótmælti nýlega á fundi sínum frumvarpi til laga, þar sem lögð er til sú breyting að þjónusta við dýraeigendur og eftirlit hins opinbera verði aðskilið. Ríkisútvarpið greindi frá þessu í gær. Þar kom fram að dýralæknafélagið óttast að erfitt verði að manna dýralæknastöður víða um land vegna strjábýlis nái þessi breyting fram að ganga.
Deila á Facebook
Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er 38.107.179.207 og er skráð með athugasemdinni.















