Landsmálavefur á Vestfjörðum | skutull@skutull.is
20.01.2012 - 12:30

Byggðakvóti í Ísafjarðarbæ: ,,Óeðlileg pólitísk afskipti"

Byggðakvótanum er ætlað að auka vinnu í landi.  Myndin sýnir verkafólk hjá Eyrarodda árið 2010
Byggðakvótanum er ætlað að auka vinnu í landi. Myndin sýnir verkafólk hjá Eyrarodda árið 2010

Bæjarfulltrúar Í-listans í Ísafjarðarbæ telja að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafi sýnt ,,óeðlilega pólitísk afskipti" af reglum um byggðakvóta, með því að leggja til breytingar á reglugerð, þar sem þriggja ára viðmiðun skal gilda við úthlutun í stað eins árs, eins og verið hefur og gert er ráð fyrir í reglugerð ráðuneytisins.  Þessi ákvörðun var harðlega gagnrýnd af bæjarfulltrúum Í-listans.  Fram kom á fundinum að afleiðing þessarar breytingar verður sú að um 100 þorskígildistonn munu flytjast frá útgerðarfélaginu Lotnu ehf., sem gerir út þrjá báta á Flateyri, til nýs fyrirtækis, Arctic Odda, sem eignaðist einn bát úr þrotabúi Eyrarodda í haust. Athygli vekur að Eiríkur Finnur Greipsson oddviti Sjálfstæðisflokksins og formaður bæjarráðs hefur nýlega ráðið sig til starfa fyrir Arctic Odda sem fjármála- og þróunarstjóri fyrirtækisins.

Eiríkur Finnur tók ekki þátt í bæjarstjórnarfundinum í gær.  Á fréttasíðunni dv.is í morgun er haft eftir honum að ,,vinatengsl geta auðvitað haft áhrif en ég veit ekki hvort þetta ágæta fólk sé að taka afstöðu til málanna á grundvelli þess."

Byggðakvóti Flateyrar á yfirstandandi fiskveiðiári er 300 tonn, en við það bætist byggðakvóti síðasta árs, sem ekki tókst að leysa út. Samtals mun byggðakvóti Flateyrar því verða um 430 þorskígildistonn. Hér er því um veruleg verðmæti að ræða, þegar haft er í huga að leiguverð á kvóta er allt að 280 krónur á kílóið. Leiguverðmæti byggðakvóta Flateyrar gæti því numið 120 milljónum króna.


Deila á Facebook
#1
20.01.2012 kl: 14:55
Gísli Halldór skrifar:

Það er bara alls ekki rétt að 100 tonn flytjist frá Lotnu til Arctic Odda.
Fyrir breytingarnar hefði Arctic Oddi fengið 39 tonn en Lotna 211. Eftir breytingarnar fær Arctic Oddi 96 tonn en Lotna 101 tonn. Mismunurinn deilist meðal annarra báta í byggðalaginu.
Þetta miðast reyndar við að allir sæki um byggðakvóta, sem kemur í ljós síðar.

#2
20.01.2012 kl: 21:49
Sigurður Pétursson skrifar:

Það er semsagt rétt að 100 tonn fara frá einu útgerðarfyrirtæki á Flateyri, vegna pólitískra afskipta þinna og félaga þinna í Flokknum og Framsókn og Arctic Oddi fær "bara" 60 tonn af því!
Hvað gerist ef tillaga okkar um að helmingur byggðakvótans dreifist jafnt á allar útgerðir, verði ekki samþykkt af ráðuneytinu?

#3
20.01.2012 kl: 23:45
Gísli Halldór skrifar:

Þetta er ekki alveg rétt heldur, byggðakvótinn er ekki eign nokkurs fyrirtækis fyrirfram og fer því ekki frá því. Þetta veist þú mörgum betur. En það er rétt að þeir fá ekki 110 tonn sem þeir hefðu getað fengið annars. Þeir hefðu reyndar heldur ekki fengið þau ef þeir hefðu ekki haft yfirráð yfir Stjána Ebba í fyrra til að flytja af honum kvóta, eða hvernig var það?
Nú skil ég betur æsinginn á fundi bæjarstjórnar þegar Í-listinn vildi fá að greiða atkvæði öðru sinni um allar tillögurnar í heild, þarna er einhver misskilningur á ferðinni. Það sem gerist ef ráðherra þóknast ekki okkar útgáfa af reglugerðinni er að hann hafnar breytingunum og segir hvað má betur fara. Hann getur ekki samþykkt hluta af tillögum Ísafjarðarbæjar um breytingar að eigin vali. Ef hann hafnar tillögum Ísafjarðarbæjar þá þarf bara að vinna málið aftur með hliðsjón af hans athugasemdum.

Skrifaðu athugasemd:

ATH. IP talan þín er 38.107.179.208 og er skráð með athugasemdinni.


Vefumsjón