21.02.2012 - 07:48
Biskupskjör: Séra Agnes opnar kynningarvef, séra Örn Bárđur lýsir yfir frambođi
Agnes M. Sigurðardóttir, sóknarprestur í Bolungarvík og prófastur á Vestfjörðum, hefur opnað vef í tilefni af framboði hennar til biskupkjörs íslensku þjóðkirkjunnar. Vefslóðin er http://sragnes.is/ og þar má finna kynningarmyndband með séra Agnesi, áherslur hennar vegna biskupskjörsins og umfjöllun um kristna trú og málefni kirkjunnar. Á vefnum fjallar sr. Agnes einnig um orð dagsins úr Biblíunni og svarar ýmsum spurningum sem beint hefur verið til biskupskandídata.
Fyrri umferð í biskupskjöri fer fram með bréflegri kosningu í næsta mánuði. Ef enginn einn frambjóðandi fær meirihluta atkvæða, verður kosið aftur á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fá. Í síðustu viku lýsti séra Örn Bárður Jónsson sóknarprestur við Neskirkju í Reykjavík yfir framboði sínu til biskups. Hér má sjá yfirlýsingu Arnar Bárðar. Örn Bárður er fæddur og upp alinn á Ísafirði, rétt eins og Agnes M. Sigurðardóttir.
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.179.208 og er skráđ međ athugasemdinni.