02.09.2010 - 12:16
Bátar með rækjuleyfi í Ísafjarðardjúpi fá 373 tonna uppbótarkvóta
Bátar við Ísafjarðardjúp sem eiga rækjuveiðileyfi og urðu fyrir skerðingu fyrir mörgum árum þegar rækjuveiðar voru bannaðar í Djúpinu fá 373 þorkígildistonna fiskveiðikvóta á nýbyrjuðu fiskveiðiári, samkvæmt nýrri reglugerð sem sjávarútvegsráðherra hefur gefið út. Auk þess koma 68 lestir í hlut báta frá Arnarfirði, 148 lestir í hlut báta við Húnaflóa, 153 lestir í hlut báta við Skagafjörð, 70 lestir í hlut báta við Skjálfandaflóa, 201 lest í hlut báta við Öxarfjörð, 23 lestir í hlut báta á Eldeyjarsvæði og 14 lestir í hlut báts í Norðurfjörðum Breiðafjarðar. Samtals eru það 1050 tonna kvóti sem bátarnir fá. Auk þess fá skelveiðibátar við Breiðafjörð, Húnaflóa og víðar á landinu 983 tonna kvóta vegna samdráttar og veiðibanns á hörpuskel. Sá kvóti skiptist þannig 919 tonn koma í hlut báta við Breiðafjörð, 7 lestir í hlut báta frá Arnarfirði, 33 lestir í hlut báta við Húnaflóa og 24 lestir í hlut báta við Hvalfjörð. Fjöldi útgerðarmanna fær hér dágóða búbót og hefur fengið í mörg ár.
Deila á Facebook
Deila á Facebook
Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er 38.107.179.210 og er skráð með athugasemdinni.















