Barist um byggđakvóta Flateyrar: Breyttar reglur rćddar í bćjarstjórn í dag
Á bæjarstjórnarfundi í Ísafjarðarbæ í dag verða ræddar breyttar reglur um byggðakvóta fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. Bæjarráð kaus á þriðjudag nefnd þriggja bæjarfulltrúa til að yfirfara hugmyndir um að breyta reglum um byggðakvóta, þannig að miða skyldi við landaðan afla þrjú síðustu fiskveiðiár sem viðmiðun til útreiknings á rétti til byggðakvóta, en ekki aðeins veiðireynslu síðasta kvótaárs, sem hefur verið venjan og reglugerð stjórnvalda gerir ráð fyrir. Ljóst er að þessi nýja viðmiðun mun breyta mestu fyrir úthlutun byggðakvóta á Flateyri, þar sem til úthlutunar koma 300 þorskígildistonn og auk þess 100-150 tonn sem færðust frá síðasta fiskveiðiári, þar sem ekki tókst að nýta byggðakvóta þess árs.
Á Flateyri hefur Lotna ehf. gert út þrjá báta síðan á árinu 2011 og er þar með stærsta útgerðarfélag á Flateyri, auk þess sem félagið ræður yfir mestum kvóta af útgerðum sem skráðar eru á staðnum. Nýtt fyrirtæki sem samdi um kaup á eignum þrotabús Eyrarodda, og þar með vélbátnum Stjána Ebba ÍS, er Arctic Oddi ehf., sem er í eigu sömu aðila og Arctic Fish ehf. sem keypti silungaeldi í Dýrafirði. Stjáni Ebba var lítið á veiðum á síðasta fiskveiðiári, vegna gjaldþrots Eyrarodda og eftirmála þess, svo það er ljóst að útgerð Stjána Ebba mun hagnast mest á því að viðmiðunin verði þrjú ár en ekki eitt.
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.179.207 og er skráđ međ athugasemdinni.















