Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
01.09.2010 - 09:23

Bannnsvćđi vegna dragnótaveiđa í Önundarfirđi fćrt utar

Bátur á Önundarfirđinum. Mynd Björn Ingi Bjarnason
Bátur á Önundarfirđinum. Mynd Björn Ingi Bjarnason
Bann við dragnótaveiðum sem taka átti gildi frá og með deginum í dag í þremur fjörðum á Vestfjörðum og Norðurlandi hefur verið breytt, þannig að lína sem ákvarðar bann við veiðunum hefur verið færð utar í firðina.  Þessi ráðstöfun gildir til áramóta. Þetta hefur verið ákveðið í sjávarútvegsráðuneytinu, að sögn mbl.is.  Reglugerð um bann við dragnótaveiðum í Önundarfirði, Miðfirði í Húnaflóa og Skagafirði átti fyrst að taka gildi í maí, en var frestað þar til í dag. Nú hefur verið ákveðið að fresta gildistökunni enn að hluta til.  Er það gert eftir viðræður við dranótamenn og aðra hagsmunaaðila.

Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.208 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón