02.09.2010 - 07:25
55. Fjórðungsþing Vestfirðinga fer fram á Hólmavík
Fimmtugasta og fimmta Fjórðungsþing Vestfirðinga verður sett á Hólmavík kl. 10.30 föstudaginn 3. september og mun standa fram á laugardag. Allir sveitarstjórnarmenn á Vestfjörðum hafa þátttökurétt á þinginu, sem fram fer í Félagsheimilinu á Hólmavík. Á þinginu munu Aðalsteinn Óskarsson framkvæmdastjóri Fjórðungssambandsins og Þorgeir Pálsson framkvæmdarstjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða kynna framvindu í sóknaráætlun fyrir Vestfirði. Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra mun ræða um undirbúning aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins. Arnheiður Jónsdóttir verkefnastjóri Fjórðungssambands Vestfirðinga og Sigurður H. Helgason framkvæmdarstjóri Stjórnarhátta ehf. munu fjalla um eflingu velferðarþjónustu sveitarfélaga og flutning málefna fatlaðra til sveitarfélaga. Auk þess eru á dagskrá þingsins ávörp Kristjáns L. Möllers samgöngu-og sveitarstjórnarráðherra og Halldórs Halldórssonar formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Á laugardaginn kynnir Sigurður Pétursson formaður Fastanefndar um samgöngumál skýrslu um störf nefndarinnar og ýmsar stofnanir sem sinna málefnum Vestfirðinga og starfa á Vestfjörðum kynna starfsemi sína á þinginu. Þá verða afgreidd þingmál, kjörin ný stjórn sambandsins og nefndir. Búist er við því að Anna Guðrún Edvardsdóttir úr Bolungarvík gefi ekki kost á sér áfram sem formaður sambandsins. Dagskrá þingsins má nálgast í heild á vef Fjórðungssambands Vestfirðinga.
Deila á Facebook

Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er 38.107.179.210 og er skráð með athugasemdinni.