04.02.2012 - 13:05
Vegurinn norður í Árneshrepp opinn
Vegurinn norður í Árneshrepp var opnaður í gær. Ákvörðun um það var tekin í innanríkisráðuneytinu. Vegagerðin byrjaði að ryðja veginn norður frá Bjarnarfirði á miðvikudaginn og komst þá í Veiðileysu. Á fimmtudag var haldið á um Veiðileysuháls yfir í Djúpavík. Leiðin um Reykjafjörð frá Djúpavík og út að Gjögri var mokuð beggja megin frá, en þar eru margar skriður og ófærur. Sveitarfélagið Árneshreppur þarf að borga helminginn af kosnaði við moksturinn á þeirri leið, segir á fréttavefnum litlahjalla.is. Þar er haft eftir Guðbrandi Albertssyni snjómoksturmanni að Kjörvogshlíðin væri bara eitt snjóflóð og væri hann búin að fara í gegnum 5 flóð á stuttum kafla. Þrátt fyrir það tókst að opna veginn í gær. Á korti Vegagerðarinnar má sjá að þæfingur er á hálsunum yfir í Bjarnarfjörð og Djúpavík og hálka í Kjörvogshlíðinni.
Fært er á öllum leiðum á Vestfjörðum, nema á milli Þingeyrar og Barðastrandar, um Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði. Víða er hálka á vegum og þæfingur á Þröskuldum og Klettshálsi.
Fært er á öllum leiðum á Vestfjörðum, nema á milli Þingeyrar og Barðastrandar, um Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði. Víða er hálka á vegum og þæfingur á Þröskuldum og Klettshálsi.















