Landsmálavefur á Vestfjörðum | skutull@skutull.is
04.02.2012 - 13:05

Vegurinn norður í Árneshrepp opinn

Unnið að snjómokstri á Kjörvogshlíð í Reykjafirði í Árneshreppi. Mynd litlihjalli.is
Unnið að snjómokstri á Kjörvogshlíð í Reykjafirði í Árneshreppi. Mynd litlihjalli.is
Vegurinn norður í Árneshrepp var opnaður í gær. Ákvörðun um það var tekin í innanríkisráðuneytinu. Vegagerðin byrjaði að ryðja veginn norður frá Bjarnarfirði á miðvikudaginn og komst þá í Veiðileysu. Á fimmtudag var haldið á um Veiðileysuháls yfir í Djúpavík.  Leiðin um Reykjafjörð frá Djúpavík og út að Gjögri var mokuð beggja megin frá, en þar eru margar skriður og ófærur.  Sveitarfélagið Árneshreppur þarf að borga helminginn af kosnaði við moksturinn á þeirri leið, segir á fréttavefnum litlahjalla.is.  Þar er haft eftir Guðbrandi Albertssyni snjómoksturmanni að Kjörvogshlíðin væri bara eitt snjóflóð og væri hann búin að fara í gegnum 5 flóð á stuttum kafla. Þrátt fyrir það tókst að opna veginn í gær.  Á korti Vegagerðarinnar má sjá að þæfingur er á hálsunum yfir í Bjarnarfjörð og Djúpavík og hálka í Kjörvogshlíðinni.

Fært er á öllum leiðum á Vestfjörðum, nema á milli Þingeyrar og Barðastrandar, um Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði. Víða er hálka á vegum og þæfingur á Þröskuldum og Klettshálsi.
03.02.2012 - 14:15

Mistök í álagningu fasteignaskatts í Ísafjarðarbæ: Bæjaryfirvöld fóru fram úr lögum!

Forráðamenn Ísafjarðarbæjar fóru yfir leyfileg mörk í álagningu fasteignaskatts
Forráðamenn Ísafjarðarbæjar fóru yfir leyfileg mörk í álagningu fasteignaskatts
Mistök voru gerð við álagningu fasteignaskatta í Ísafjarðarbæ fyrir árið 2012. Við gerð fjárhagsáætlunar var ákveðið að lækka álagningarprósentu vatnsgjalds og holræsagjalds, en hækka þess í stað álagningu fasteignaskatts. Þessir þrír skattar ásamt sorpgjöldum og lóðarleigu kallast einu nafni fastei...
Meira
03.02.2012 - 09:30

Fimm iðnaðarmenn stofna Trésmiðju Ísafjarðar ehf.

Halldór Antosson, einn af frumkvöðlum Trésmiðju Ísafjarðar ehf.
Halldór Antosson, einn af frumkvöðlum Trésmiðju Ísafjarðar ehf.
Fjórir fyrrum starfsmenn Trésmiðjunnar TH ásamt Hjálmari Guðmundssyni trésmíðameistara, vinna nú að því að endurreisa glugga- og innréttingasmiðju á Ísafirði undir nafninu Trésmiðja Ísafjarðar ehf.  Þeir sem standa að fyrirtækinu eru Halldór Antonsson, Vignir Guðmundsson, Júlíus Ólafsson og Einar Bj...
Meira
Heiti potturinn
03.02.2012

Magnús Ólafs Hansson: Hvert stefnum við?

Magnús Ólafs Hansson, Patreksfirði
Magnús Ólafs Hansson, Patreksfirði
Samkvæmt tölum Hagstofunnar hefur fólki á suðursvæði Vestfjarða fækkað um 40% frá árinu 1990. Með fækkandi fólki dregur jafnt og þétt úr allri þjónustu, eins og gefur að skilja.   Fyrir þriðjungi aldar eða kringum 1980 gat fólk á svæðinu sótt flesta þjónustu á Patreksfjörð. Þá var Patreksfjörður m...
Meira
Fleiri greinar
Bloggarar
05.02.2012 | Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Í fyllingu tímans

Ekki þýðir að gráta Björn bónda þó einhver smá harðindi séu boðuð handan hornsins. Maður verður bara að bíta á jaxlinn og bölva í hljóði. Ég held að hárið sé farið að losna enn frekar frá hársverðinum af einskærum pirringi yfir þessu öllu saman og það verður svo að vera, ég er svosem búin að búast v...
Meira
Fleiri blogg
Vefumsjón