Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is

Messa á Hlíf, Torfnesi

Messað verður á Hlíf á Torfnesi á Ísafirði sunnudaginn 5. febrúar klukkan 14.00.  Prestur séra Magnús Erlingsson.

Húslestur á Gamla sjúkrahúsinu: Fríđa Á. Sigurđardóttir rithöfundur

Húslestur verður á Gamla sjúkrahúsinu á laugardag, 11. febrúar. Þá munu Elfar Logi Hannesson leikari og Jóna Símonía Bjarnadóttir safnfræðingur kynna og lesa úr verkum Fríðu Á. Sigurðardóttur rithöfundar. Fríða var Vestfirðingur að ætt og uppruna frá Hælavík. Eftir hana liggja fjöldi skáldverka. Lesturinn hefst kl. 14 og eru allir velkomnir.

Messa í Ísafjarđarkirkju

Messa í Ísafjarðarkirkju, sunnudaginn 12. febrúar, kl. 11.  Prestur séra Magnús Erlingsson.

Íslandsmótiđ 1. deild karla: KFÍ - ÍG

Íslandsmótið í körfubolta, 1. deild karla: KFÍ - ÍG  í íþróttahúsinu á Torfnesi á Ísafirði, sunnudaginn 12. febrúar kl. 19.45.

Rćtur, félag áhugafólks um menningarfjölbreytni: Framhaldsađalfundur

Framhaldsaðalfundur Róta, félag áhugafólks um menningarfjölbreytni verður haldinn í Edinborgarhúsinu miðvikudaginn 15. febrúar 2012, klukkan 20:00. Efni: Venjuleg aðalfundarstörf og stjórnarkjör. Nýir félagar eru velkomnir.

Miđsvetrartónleikar Tónlistarskólans í Hömrum

Miðsvetrartónleikarnir eru liður í hátíðahöldum Tónlistarskóla Ísafjarðar í tilefni af Degi tónlistarskólanna 2012. Á tónleikunum er fjölbreytt dagskrá, einkum alls kyns samleikur, gítarsveitir, rokksveit, 8hent á píanó og svo framvegis. Tónleikarnir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis.

Dagur tónlistarskólanna: Stórtónleikar Tónlistarskólans í Ísafjarđarkirkju

Tónlistarskóli Ísafjarðar stendur fyrir stórtónleikum í Ísafjarðarkirkju laugardaginn 25. febrúar kl. 14:00. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni af Degi tónlistarskólanna sem haldinn er hátíðlegur um allt land um þessar mundir. Á fjölbreyttri efnisskránni verða ýmsar sveitir skólans, m.a. ÍSÓFÓNÍAN, stórhljómsveit sem skipuð er fjölda nemenda á hin ólíku hljóðfæri og syngja kórar skólans með hljómsveitinni. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Vefumsjón