Andlit norðursins sýnd í Félagsheimili Bolungarvíkur
Kvikmyndin „Andlit norðursins" verður sýnd í Félagsheimili Bolungarvíkur laugardaginn 14. janúar, klukkan 14. Það er Lionsklúbbur Bolungarvíkur sem stendur fyrir sýningunni og er aðgangur ókeypis. Myndin fjallar um feril og myndir ljósmyndarans Ragnars Axelssonar, RAX, en ljósmyndir hans, ekki síst af náttúruöflunum á norðlægum slóðum og samspili fólks og náttúrunnar þar, fyrr og nú, hafa vakið mikla athygli síðustu misseri.
- Hvar?
-- - Hvenær?
14. janúar - Klukkan?
14:00 til 15:25
KFÍ - FSU í 1. deild karla
Körfuknattleikur, 1. deild karla: KFÍ- FSU. Sunnudaginn 15. janúar kl. 19.15 í Íþróttahúsinu á Torfnesi.
- Hvar?
Íþróttahúsið Torfnesi - Hvenær?
15. janúar - Klukkan?
19:15 til 20:45
Óperukynning og stofnun óperuklúbbs
Óperan Törfaflautan eftir Wolfgang Amadeus Mozart verður kynnt í tónlistarsalnum Hömrum á Ísafirði, mánudagskvöldið 16. janúar, klukkan 19:30. Fjallað verður um tilurð óperunnar og sýnd verður DVD-upptaka af uppfærslu Ingmars Bergmans á verkinu og jafnvel brot úr fleiri uppfærslum. Það er Ópera Vestfjarða sem stendur að kynningunni, sem er öllum ókeypis.
Í framhaldi af kynningunni er ætlunin er að stofna klúbb óperuáhugafólks sem hittist reglulega, kynnir sér, hlustar og horfir á hinar ýmsustu óperur, óperettur og söngleiki. Allt áhugafólk er hjartanlega velkomið.
- Hvar?
-- - Hvenær?
16. janúar - Klukkan?
19:30 til 21:50
Messa í Ísafjarðarkirkju
Messað verður í Ísafjarðarkirkju, sunnudaginn 22. janúar kl. 11.00. Sr. Sigríður Guðmarsdóttir prédikar.
- Hvar?
Ísafjarðarkirkja - Hvenær?
22. janúar - Klukkan?
11:00 til 12:00
KFÍ - Hamar í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar
KFÍ og Hamar frá Hveragerði mætast í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar í körfu, sem kennd er við Powerade drykkinn. Leikurinn fer fram sunnudagskvöldið 22. janúar kl. 19.15 í íþróttahúsinu á Torfnesi á Ísafirði. Áfram KFÍ
- Hvar?
Íþróttahúsið Torfnesi - Hvenær?
22. janúar - Klukkan?
19:15 til 21:00
KFÍ - Ármann í 1. deild körfunnar
Körfuknattleikur, 1. deild karla: KFÍ - Ármann. Sunnudaginn 29. janúar kl. 19.15 í Íþróttahúsinu á Torfnesi.
- Hvar?
Íþróttahúsið Torfnesi - Hvenær?
29. janúar - Klukkan?
19:15 til 20:45
Kvöldmessa í Ísafjarðarkirkju
Kvöldmessa verður í Ísafjarðarkirkju, sunnudaginn 29. janúar, kl. 20. Þorsteinn Haukur Þorsteinsson leikur á gítar. Prestur séra Magnús Erlingsson.
- Hvar?
Ísafjarðarkirkja - Hvenær?
29. janúar - Klukkan?
20:00 til 21:10















