Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is

Óperukynning og stofnun óperuklúbbs

Óperan Törfaflautan eftir Wolfgang Amadeus Mozart verður kynnt í tónlistarsalnum Hömrum á Ísafirði, mánudagskvöldið 16. janúar, klukkan 19:30. Fjallað verður um tilurð óperunnar og sýnd verður DVD-upptaka af uppfærslu Ingmars Bergmans á verkinu og jafnvel brot úr fleiri uppfærslum. Það er Ópera Vestfjarða sem stendur að kynningunni, sem er öllum ókeypis.

Í framhaldi af kynningunni er ætlunin er að stofna klúbb óperuáhugafólks sem hittist reglulega, kynnir sér, hlustar og horfir á hinar ýmsustu óperur, óperettur og söngleiki. Allt áhugafólk er hjartanlega velkomið.

Vefumsjón