Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is

Andlit norđursins sýnd í Félagsheimili Bolungarvíkur

Kvikmyndin „Andlit norðursins" verður sýnd í Félagsheimili Bolungarvíkur laugardaginn 14. janúar, klukkan 14. Það er Lionsklúbbur Bolungarvíkur sem stendur fyrir sýningunni og er aðgangur ókeypis. Myndin fjallar um feril og myndir ljósmyndarans Ragnars Axelssonar, RAX, en ljósmyndir hans, ekki síst af náttúruöflunum á norðlægum slóðum og samspili fólks og náttúrunnar þar, fyrr og nú, hafa vakið mikla athygli síðustu misseri.

Vefumsjón