Opið hús hjá Leiklistarskóla Kómedíuleikhússins
Opið hús verður hjá Leiklistarskóla Kómedíuleikhússins laugardaginn 11. september á milli klukkan 14 og 16 í húsnæði skólans. Leiklistarskóli Kómedíuleikhússins verður settur í fyrsta sinn sunnudaginn 19. september. Skólinn býður upp á fjölmörg námskeið fyrir börn og fullorðna í haust. Skólinn er til húsa í Listakaupstað á Ísafirði (áður hús Norðurtangans) á horni Tangagötu og Fjarðarstrætis, efstu hæð.
- Hvar?
Listakaupstaður, 4. hæð á horni Tangagötu og Fjarðarstrætis - Hvenær?
11. september - Klukkan?
14:00 til 16:00















