Hvernig sumrinu lauk, How I ended this summer, mynd eftir Kak Ya Provel, Etim Letom og Alexei Popogrebsky (RUS) 2010 124 min. Á afskekktri eyju í Norður-Íshafinu er dagurinn margar vikur að líða, enda sest sólin aldrei á sumrin á svo norðlægum slóðum. Á eyjunni var eitt sinn mikilvæg rannsóknarstöð en nú starfa þar aðeins tveir menn, þeir Sergei, reyndur veðurfræðingur, og Pavel, sem er nýútskrifaður úr framhaldsskóla. Von er á skipi til að sækja þá félaga og verða það mikil tímamót í lífi Sergeis, enda hefur hann dvalið á staðnum í mörg ár og hlakkar mikið til að snúa aftur til eiginkonu sinnar og barns. Pavel vonar hins vegar að hann fái tækifæri til að upplifa ævintýri á borð við þau sem hann dreymdi um þegar hann gerðist sjálfboðaliði á þessum sérstaka stað. Dag einn þegar Sergei er úti á veiðum heyrir Pavel hins vegar talstöðvarskilaboð sem hann vill helst ekki koma áleiðis til Sergeis.